já ég held þetta blogg sé liðið undir lok
kem kannski aftur þegar ég hef ekkert að gera í lok nóv komin 40v + og þarf að pústa hehe
» 1 hafa sagt sína skoðun
og hef það fínt
búin að byrja að skrifa nokkrum sinnum færslu hingað inn en svo einhvernveginn kemur ekki andinn og þá nenni ég ekki meir
er sem samgt en þá í fríi skólinn byrjar ekki fyrr en 3 sept held ég og kennsla 10 sept. Fengum loksins stundatöfluna í gær og þetta lítur ágætlega út mæti kl 8 bara 2 daga í viku - hina eð seinna
en ég held þetta dugi á bili - skrifa þegar andinn kemur yfir mig
Nú er svo komið að það er í "tísku" hjá bæjarfélugum að halda sínar eigin hátíðir - svo virðist sem unglingar stundi það mikið að mæta þarna og sukka eins og þeir eigi lífið að leysa og allt fer út böndunum og hverjum er kennt um? jú staðahöldurum, skipulagning ekki nógu góð - ekki næg löggæsla eða þar frameftir götunum. Sum bæjarfélög hafa meira að segja gripið til þess ráðs að hætta að hafa sína hátið eða eins og Borgarbyggð gerði ákvað bara að auglýsa EKKI neitt Borgfirska daga svo ekki einu sinni galmir/nýjir Borgfirðingar gátu tekið þátt því það fór bara framhjá fólki að þessi hátið væri haldin. EN það sem ég er að reyna að fara í þessum vangaveltum mínum er HVAR ERU FORELDRANIR sem eiga að bera ábyrgð á því að þessir 14-17 ára unglingar séu ekki að fara ein að sækja heim þessar hátíðir og gera allt vitlaust. Heyrandi sögur þess efnis að 14 ára unglingar hafi legið áfengisdauðir úti á götu á stuðmannatónleikum niðri í bæ á írskum dögum lætur mann fá smá í magann! nei í alvöru af hverju er ekki frekar reynt að virkja foreldra svolítið í að taka ábyrgðina á börnunum og reyna að losna við þennan aldurshóp úr þessu rugli og þá er hægt að nota löggæsluna í að halda næsta aldurshóp fyrir ofan rólegum! Ég geri mér alveg grein fyrir að það sé erfitt að setja stopp á 17 ára ungling með bílpróf ...
Jæja þetta voru allavega vangaveltur dagsins í boði okkar Marinós sem erum heima í sumarfríi í dag.
» 4 hafa sagt sína skoðun
» 0 hafa sagt sína skoðun
jæja þetta mjakast allt saman.. nú er maður búin með 4 áfanga af 7 kláraði feminismann á föstudag með því að skila 50% ritgerð. Áfanginn sem ég er í núna heitir lagaumhverfi alþjóðastofnanna og tilheyrir lagadeildinni ég gat bara ómögulega hugsað mér meiri heimspeki búin með 3 heimspekiáfanga af 4. Skil líka ekki alveg hvað mín deild var að hugsa okkur var ss boðið uppá 6 heimspekiáfanga og einn hagfræði sem var eiginlega heimspekihagfræði Allavega fékk ég nóg og ætla að taka einn áfanga úr lagadeild núna og síðust 2 tek ég úr viðskiptadeild svo öllu má nú bjarga .... Hefði samt viljað hafa kannski stjórnmálaáfanga líka þarna þar sem það voru nu kosningar í vor og svona nóg að tala um
en nóg af skólamálum. Eins og vel flestir vita þá ætlum við að verða vísitölufjölskylda í lok nóvember sem sagt annar bogamaður á ferðinni. Ég held nú samt það láti ekki sjá sig fyrr en í des.. við fengum nú alveg að biða í 6 daga eftir Marinó sem endaði svo á að svindla sér út um topplúguna ... eftir að hafa leyft mömmu sinni að fá hríðar og 9 og hálfan í útv. en ég er nú minnst stressuð yfir því. Fór í fyrstu mæðraskoðun á fimmtud. og það var svona lika að hrekkja að ljósan fann ekki hjartsláttinn en heyrði góð fylgjuhljóð og allt annað kom vel út. Eftir að hafa melt þetta betur um helgina, rætt þetta við Dísu sys og Pálma ákv ég þó að skella mér út á skaga áðan og fá að heyra hjartslátt ... var ekki alveg að fíla það að bíða þar til við förum í sónar sem er 2 júlí allavega eftir korters leit þá loksins heyrðist þessi undurfagri hljómur, skýringin sú að líkl. er fylgjan framan á og eins og er þá hefur það nóg pláss til að svamla um og fela sig sem sagt stríðnispúki en allt í góðu Ég giska reyndar á að það eigi svo eftir að krossleggja fæturna í sónarnum og fela kynið sem við ætlum að reyna að fá að vita og svo sitja þegar kemur að fæðingu eða á einhvern hátt svindla sér upp um topplúguna líkt og Marinó en þetta kemur allt saman í ljós ég er sátt við allt meðan ég fæ heilbrigt barn reyndar giska ég á strák hvað segiði? Pálmi er í stelpuliðinu
Annars er bara allt við sinn vanagang erum í skírnaveisluflóði þessa vikuna fórum í gær hjá Dagnýju og Edda en prinsinn þeirra fékk fallega nafnið Egill Breki fallegt nafn á fallegan pilt og þökkum að sjálfsögðu fyrir okkur gátum étið á okkur gat af girnilegum kræsingum Næst á svo að skíra hjá Hófí og Dóra en það er á laugardaginn komandi ... Systir mín og Marc auðvitað líka ætla svo að reka lestina með því að skíra Natalie og Isabel á sunnudaginn gaman að þessu
held ég láti þetta duga
farin að lesa lagaumhverfi alþjoðastofnanna ekki veitir af próf úr fyrstu 4 köflunum á miðvikud!
hilsen
Silja
haldiði að hann sé ekki á forsetalistanum í HR http://www.ru.is/?PageID=1178 sem þýðir að hann var með framúrskarandi námsárangur á síðustu önn og fær skólagjöldin fyrir þá næstu niðurfelld enda var hann með 9.1 í meðaleinkunn ekkert smá frábært ég er svo montin enda tel ég mig eiga aðeins í þessu ég var svo dugleg að veita honum andlegan stuðning hahahahah
ætluðum á Akureyris um helgina í bústað, slappa vel af
en nei ætli það sé fært þangað á sumardekkjum
helvítis helvítis veðurfar á íslandi
pirrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
» 2 hafa sagt sína skoðun
að vera ekki að drukkna í prófalestri eins og svo margir þessa dagana en ég er nú alveg búin með minn skammt fyrir þessa önnina svo sem nú er ég í þessum glæsilega hnattvæðingaráfanga/globalization sem hann dr. Pikalo er að kenna okkur ... hann kemur frá Slóveníu og ákv að verkefni áfangans væru að gera 2xritgerðir ein 1000 orða og hin 2000 orða og svo hópverkefni með að spurja hópinn okkar sp úr textum dagsins þeir sem mig þekkja ættu núa ð vita að enska er ekki mín sterkasta hlið svo það er búið að ganga upp og ofan að gera þessar ritgerðir og lesa efnið en það hefst Dísa sys ætlar að vera bjargvætturinn minn og ég er búin að skila þeirri styttri inn svo nú er bara að púsla hinni saman eeeeeeeeen þetta reddast já það reddast trallalalllallal
skellti mér einmitt suður á sunnud til að klára fyrri ritgerina fór til Dísu sys og tvíburunum finnst ég greinilega bara svo frábær að þær ákv að vakna á 1-2 klst fresti í stað 4-5 venjulega svo þetta gekk mun hægar hjá okkur en áætlað var en það var líka svo gaman að fá að vera með þeim og gefa þeim að drekka og knúsa og kyssa að það var ÆÐI
En allavega ein ritgerð eftir og þetta hópverkefni átti einmitt að vera með það í dag en það var ákv á síðustu stundu að það ætti ekki að vera kennsla í dag eins og fyrirhugað var svo eg veit ekkert hvernig þetta fer
Næst ætla ég svo að skella mér í Siðferði atvinnulífsins og samfélagsins og guð hvað ég hlakka til að byrja að lesa og skrifa á íslensku mín yndislega íslenska í þeim áfanga eru 2 ritgerðir og 1 próf svo ég er nú ekki alveg laus við þau en þetta er bara spennó... en það er nóg eftir því allt í allt tek ég 7 fög
en nóg um það nú liggja strákarnir mínir lasnir pálmi með bullandi hita og marinó er með kvef og búinn að vera með það lengi ekkert að ná úr sér svo hann er bara inni og er dælt í hann sólhatt vona allavega að hann sé að lagast það er þvílík kveflykt út úr honum og skærgrænt hor í nebbós en þetta er ekki hægt vera veikri meðan besta veðrið er líst ekki á þetta sko... en pant svona veður í allt sumar þetta er geggjað
nú er bróðir minn orðinn íbúðareigandi óska honum innilega til hamingju með það en finnst um leið ferlegt að hann hafi náð þeim áfanga á undan stóru systir sinni en það kemur nú að þessu hjá manni um leið og BA gráðan er í höfn!
Pálmi er svo búinn að vera brillera í skólanum bara 9 og 10 að hrugast inn og ég sem var svo stolt af sjálfri mér um daginn að hafa meira að segja náð 8 í þjoðhagfr. EN ég trúi því að ég sé bara í mun erfiðara háskólanámi en hann hehehhehhehehe
annars er bara mest lítið að frétta það er bara BRJÁLAÐ að gera þessa dagana í skólanum ég kemst varla út úr húsi skoh lofa að koma með meiri stærri fréttir fljótlega
hilsen silja
Jæja allt það fína frá kína að frétta hér ... kláraði missó seint í gær finally rosa flott stykki hjá okkur vaknaði spennt í morgun kl hálf 7 eða eð því einkunnirnar voru að koma inn og jibbí skibbí mins náði öllu im só brægt allavega 2 annir að verða búnar í Háskóla styttist alltaf í BA ritgerð svo er bara málsvörn á föstudaginn og svo á mánudag byrjar sumarskólinn 14 vikur 7 áfangar 2 vikur í hvern áfanga byrjar á hnattvæðingu spennó hlakka samt bara til 27 júlí þá er maður kominn í sumarfrí það verður nææææs
Pétur og íris búin að skíra prinsinn Sigurður Darri heitir hann flott nafn á flottan strák ég komst ekki því miður en feðganri héldu uppi heiðri fjölskyldunnar og skelltu sér
jæja varð bara að MONTA mig smááá
hafið það gott
» 5 hafa sagt sína skoðun
http://www.barnanet.is/3896 þær eru bara sætastar sko
mestu rúsínurnar skoh!!
luv silja
Skondnar pælingar fannetta á netinu skoh Af hverju ætli maður þurfi alltaf að gá hvort veggur sé nýmálaður,þegar maður sér viðvörun um það?
Af hverju er Alcoholics Anonymus (AA) (ísl. "Ónafngreindir Alkoholistar" nefndir svo, þegar það fyrsta sem þeir gera á fundum er að standa upp og segja eitthvað á þessa leið: "Ég heiti Halldór og ég er alkoholisti"? Skyldi "franskur koss" bara kallast "koss" í Frakklandi? Hver ætli hafi verið sá fyrsti sem horfði á kú og sagði: "Ég held ég kreisti þetta dinglumdangl neðan á henni og drekki það sem út kemur?" Það má einnig orða þetta sem svo: Hvað hélt fyrsti maðurinn, sem mjólkaði kú, að hann væri að gera? Af hverju límist ekki límtúpan saman? Af hverju sér maður aldrei fyrirsögnina: "Skyggn manneskja vinnur í lottó"? Af hverju er hnefaleikahringurinn ferhyrndur? Af hverju er appelsínusafi framleiddur úr gerviefnum og uppþvottalögur búinn til úr ekta sítrónum? Af hverju eru flugvélar ekki framleiddar úr sama efni og "svarti kassinn" sem er óbrjótandi og erfitt að eyðileggja? Af hverju eru allar brauðristar með stillingu sem brenna brauðsneiðar í kolamola sem enginn vill borða? Ef maður á jarðarskika, á maður hana þá alveg niður að kjarna jarðarinnar? Af hverju geta konur ekki sett á sig maskara án þess að hafa opinn munninn? Af hverju klæjar mann alltaf í nefið þegar maður er búinn að óhreinka hendurnar? Af hverju er mínútan miklu lengur að líða fyrir utan klósetthurðina en innan? Hvers vegna vantar okkur alltaf eitthvað af draslinu sem við geymdum uppi lofti í 3 ár, 3 dögum eftir að við hentum því loksins? Hvernig veistu hvor "armhvílu" þú átt í bíó? Ef þú segir að eitthvað sé "ólýsanlegt", er það orð þá ekki að lýsa því? Geturðu sofið að eilífu án þess að vera í dái? Af hverju var þetta kallað The Cosby Show þegar karakterinn hans Bill Cosby´s hét Heathcliff Huxtible? Af hverju, þegar við tölum við Guð erum að biðja, en þegar Guð talar við okkur þá erum við geðveik? Getur einhver verið í skýjunum en samt verið jarðbundinn á sama tíma? Ef einhver þjáðist af minnisleysi og yrði síðan læknaður myndi hann þá muna hverju hann gleymdi? Ef að söngvari syngur sitt eigið lag í karókí-partýi, er það þá talið karókí? Af hverju eru franskar ekki taldar sem grænmeti, þær eru bara djúpsteikar kartöflur? Af hverju er vanilluís hvítur þegar vanillublanda er brún? Af hverju getur maður ekki verið brúnn á lófunum? Af hverju má fólk setja naktar styttur út en af hverju megum við ekki hlaupa úti nakin? Geta sköllóttir menn fengið lús? Af hverju er poppkorn ekki grænmeti?
jæja prófin búin ... blendnar tilfinningar veit nebbilega ekki alveg hvernig mér gekk en það kemur nú í ljós allt saman 16 apríl ... en nú er bara bjór og pizza og klipping og svo .. hmmm eð skemmtó
sjónvarpið mitt er víst ónýtt alveg tíbískt ...
að lokum langar mig að benda ÖLLUM Borgnesingum að skella sér á námskeið hvernig maður leggur bílum það á sko að hitta á milli hvítu línanna ekki yfir þær og svo væri ágætt ef þeir fengu líka kennslu í hvernig maður er á bílastæðum ss maður stoppar bílunum ekkert bara hvar sem er og býr til röð ... alveg sko hélt ég væri í einhverjum ökuskóla áðan þegar ég þurfti að fara í apótekó úffff
jæja have fun to night
já ég fékk nýtt hlutverk í gær ... er orðin móðursystir mér finnst það mjög ábyrgðarfullt og áhugavert nú get ég bara ekki beðið eftir að fá að sjá rúsínurnar mínar þær eru víst algerlega fullkomnar ... sléttar og fallegar .. þær voru um tæpl 10 merkur og 45 cm eiginlega alveg jafnstórar Dísa og Marc innilega til hamingju með þær ...
jájájá annars bara próf á milljón 2 búin þar af eitt munnlegt og eitt eftir SAST á föstudaginn sp hvort maður skelli sér svo á skálaball um kveldið tl að fagna próflokum kemur í ljós
Já góðan dag
Eins og allir vita er ég alltaf að blogga eth hér inn enda mikil bloggari. En vildi bara minna alla á að mæta í "Fjósið" á Þriðjudaginn 20. mars á odddaleik vs Grindavík. Verður ekki meira fjör en þetta. Þeir sem ekki mæta, sorry þið
Kv Pálmi
áfram Latibær.
þið rúml 40 sem komið hingað inn og ekki kvittið heimta kvitt kvitt kvitt
Allt það fína frá kína að frétta... síðasta vikan í skólanum próf í næstu viku prófataflan svo sem ágæt en við byrjum á þjóðhagfræði kl hálf 2 á þriðjudag.. miðvikudagur munnlegt í samanburðarstjórnmálaum og svo saga stjórnmálahugmynda á föstudag kl hálf2 svo að á föstudag kl hálf fimm verður sko slett úr klaufunum
svo nú er maður bara að leggja lokahönd á síðustu verkefnin er að spá í að taka aukapróf í þjóðhagfr til að hífa vetrareinkunnina aðeins upp og svo er tímaritgerð á fimmtudag sem er nottla út í hött sko en svo um kveldið er missóhittingur bara spennandi skohhh
á föstudag byrjar svo úrslitakeppnin hjá okkar mönnum þeir fá grindjána í heimsókn líkt og í fyrra bara eins gott þetta fari eins og í fyrra en það var 2-0 fyrir okkar mönnum!!!!! pant það aftur en ég kemst því miður ekki á leik nr 2 sem er á sunnud kemur ...
annars er drengurinn kominn með hita alveg eftir bókinni en sem betur fer er ég búin með UPTA og þarf ekki að mæta á morgun sjúkket skohh
annars bið eg að heilsa í bili og kvitt kvitt kvitt koooooma svooo...
óver and át sísí
ps er ekkert orðin þunglynd þó svo ég hafi skipt aftur yfir í svart fannst þetta gula bara svo ljótt
» 9 hafa sagt sína skoðun